Atburðaskráningarsíða sem auðvelt er að setja upp á heimasvæði nemenda Háskóla Íslands (notendur.hi.is). Hugsað sem lausn fyrir smærri nemendafélög innan Háskóla Íslands, til að halda utan um skráningar í vísindaferðir og/eða aðra atburði innan viðkomandi félags.
Til stendur að setja saman BASH skrá til að gera uppsetningu síðunnar sem auðveldasta, þá á að vera hægt að keyra viðkomandi skrá á heimasvæði þess aðila sem ætlar að setja síðuna upp á heimasvæði sínu.
COMING SOON(ish): < Uppsetningarupplýsingar >
Notendur þurfa að hafa aðgang að uglunni þar sem hún er notuð til að staðfesta innskráningar, þannig er óþarfi fyrir notendur að búa til sér lykilorð fyrir síðuna og þegar bætt er við notendum á síðuna er nóg að skrá inn nafn viðkomandi og uglu notandanafn.
Bakendi síðunnar er skrifaður í php og útlit er að mestu fengið frá Bootstrap 3.0. Notast er við skemmtilegt dagatal til að velja dagsetningar, sjá datetimepicker. Notast er við SQLite gagnagrunn.
Sjá demo síðuna Vísó.